Hveravík er lítil ferðaþjónusta við samnefnda vík á norðanverðum Steingrímsfjörður. Uppbygging á svæðinu hófst árið 2017 og nýtir starfsemin heitt vatn í eigu jarðarinnar.
Á Hveravík er rekið lítið en vel búið tjaldsvæði, opið allt árið, með plássi fyrir 20-30 ferðabíla og tjöld. Þar er rafmagnstenging, snyrtiaðstaða, sturtur og heitur pottur með útsýni yfir fjörðinn. Gestaaðstaðan Söngsteinn býður upp á inniaðstöðu til að borða og fullbúið eldhús.
Yfir sumartímann er boðið upp á kajakleigu og hvala-, fugla- og náttúruskoðun í Steingrímsfirði, þar sem stutt er á miðin og sjór oft lygn. Á jörðinni er einnig gróðurhús, auk hesta og hæna sem hafa vakið ánægju meðal gesta.